Höfundur hinnar upprunalegu bókar um sögupersónu þessa skrifaði bara eina bók um hana. Tvær framhaldsbækur eftir annan höfund náðu vinsældum í enskumælandi löndum. Á annarri þeirra eignast konan sem um er spurt tvíbura.
Beðið er um beðjunafn.
# # # # # # # # # # # # #
Mér finnst magnað að verið sé að velta sér upp úr því hvort ísraelsstjórn viðurkenni að eiga kjarnorkuvopn. Nú hafa birst ljósmyndir af þessum kjarnorkuvopnum. Menn hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir að ljóstra upp um tilvist þeirra. Gott ef Sharon setti ekki fram lítt dulbúna hótun um að beita kjarnokuvopnum gegn óvinaríkjum ísraels fyrir nokkrum misserum. Og svo mætti lengi telja.
Hvað þarf nákvæmlega til að fullsannað þyki að kjarnorkuvopn séu í geymslum ísraela? Sveppaský yfir Damaskus?