Viðureign QPR og Luton um helgina var epískur stórleikur, sem vænta mátti. Úrslitin urðu 2:2, þar sem gleiðilegustu tíðindin voru kannski þau að Warren Feeney skoraði í annað sinn á skömmum tíma. Markaþurrð hans var búin að vera með ólíkindum síðasta árið.
Jafnteflið þýðir að liðin mætast aftur, en því miður fóru það margar viðureignir í seinni leik að ólíklegt er að þessi slagur verði fyrir valinu sem sjónvarpsleikur.
Geri ráð fyrir að seinni leikirnir verði leiknir á þriðjudegi, miðvikudegi og fimmtudegi – sem gefur þrjá sjónvarpsleiki. Newcastle-Birmingham verður pottþétt einn þeirra, en engir hinna eru neitt augljósir kostir, öll úrvalsdeildarliðin sem eftir eru eiga t.d. heimaleiki gegn neðrideildarliðum. Svo er Luton-QPR núÂ hálfgerður grannaslagur, svo maður veit aldrei…
# # # # # # # # # # # # #
Fyrsti kennsludagur í Þáttum úr sögu og heimspeki vísindanna er í dag kl. 15:50. Ennþá er tekið við nýjum nemendum.
Að þessu sinni erum við fjórir sem kennum námsskeiðið: ég, Sverrir Jakobs, Þorsteinn Vilhjálmsson og Steindór Erlingsson. Við Sverrir munum kenna okkar tíma saman, okkar helmingur námskeiðsins verður um heimsmyndarfræðina. Steindór sér um sögu þróunarkenningarinnar og lífvísinda, en Þorsteinn fjallar einkum um heimspekiþáttinn: Popper, Kuhn og Hacking.
Erlendur gestakennari tekur einn fyrirlestur – um Galileó að mig minnir.
# # # # # # # # # # # # #
Nú er leiðindafrost úti. Megi Moggabloggið éta það sem úti frýs.