Þriðjudagskvöld eru fótboltakvöld, svo það er harla ólíklegt að ég nenni að blogga í kvöld um úrslit dagsins í GB. Þetta verða hins vegar þrjár athyglisverðar viðureignir.
MS mun vafalítið vinna Grundfirðinga án teljandi vandræða. Spurningin er bara hvort MS-liðið verði almennilega sjónvarpstækt? Ari Gunnar, sem verið hefur í liðinu síðustu 2-3 árin ber það uppi og á í sjálfu sér að vera nógu góður til að komast í sjónvarpið einn síns liðs. Mér skilst að félagar hans í liðinu sé pjakkar af fyrsta og öðru ári, sem er ekki vænlegt til árangurs. Sjálfur hef ég alltaf verið á móti því að setja busa í liðið.
Kópavogur og Sauðárkrókur eigast við. Spái MK sigri í stigalágri keppni. Krókurinn fær prik fyrir að vera með stelpu í liðinu.
íhugaverðasta viðureign kvöldsins (fyrir forherta GB-nörda) er Menntaskólinn á ísafirði gegn Iðnskólanum í Hafnarfirði. Hvers vegna? Jú, ef Iðnskólinn vinnur kæmist hann í 2. umferð í fyrsta skipti í sögunni. Ef MÁ reynist á hinn bóginn hafa á skipa þokkalegu liði, þá væri það afar áhugavert þar sem ísfirðingar hafa aldrei komist í sjónvarp – einn sárafárra skóla.
Á heimasíðu nemendafélagsins fyrir vestan eru liðsmenn kynntir til sögunnar undir viðurnefnunum: Dollmaster, Hjalti Úrsus og Jói stálheppni. Kallið mig fordómafullann, en þetta hljómar ekki efnilega. Engar upplýsingar er að finna um lið Iðnskólans í Hfn. á heimasíðu skólans eða nemendafélagsins. Það er heldur ekki efnilegt.
Hvað fleira er ekki efnilegt? Jú, Moggabloggið náttúrlega.