Draumfarir
Palla dreymir seli á nóttunni, sem er óhræk sönnun þess að hann sé að ganga af göflunum. Það er þó rétt hjá honum að skárra er að dreyma seli en grjótbrot – það er þreytandi. Eitt versta tímabil lífs míns var þegar mig dreymdi stöðugt að ég væri að spila Minesweeper og allt sprakk í loft upp um það leyti sem ég var að ná að klára. Þetta gerðist svona tíu nætur í röð, að ég vaknaði grútsifjaður og úttaugaður eftir maraþon-minesweeper spilamennsku. Mætti ég þá heldur biðja um seli.
* * *
Og talandi um drauma – eftir flutningana á Mánagötuna verður Draumurinn á Rauðarárstíg loksins orðin hverfissjoppan mín. Það er magnaður söluturn, sem einkum er frægur fyrir eigandanna – Júlla í Draumnum. Það er allt mjög frjálslegt við rekstur Draumsins – t.d. er annað verðlag á gosinu á kvöldin um helgar en að deginum til, a.m.k. ef kúnnarnr eru á lakkskóm og virðast vera að kaupa sér bland. Þá var mér einhverju sinni sagt að Draumurinn seldi meira af kardimommudropum en Hagkaup. Sel það ekki dýrar en ég keypti.
* * *
Herra draumóri var aldrei í sérstöku uppáhaldi hjá mér, engu að síður var hann einn af fáum herramannaköllum sem ég átti sem gríslingur. (Ég átti hins vegar fullt af strumpum.) Herra draumóri var blár á litinn og í laginu eins og skýjahnoðri. Hann var ein fárra persóna í herramannabókunum sem ekki tók út neinn þroska í sögunni af sér. Ætli Herra hávær eða Herra kitli hafi ekki verið flottustu herramennirnir?
* * *
Eflaust spyrja ýmsir af yngri kynslóðinni sig að því hvers vegna við gamla fólkið biðjum um „Lakkrís-Draum“ úti í sjoppu þegar við ætlum að fá okkur samnefnt súkkulaði. Á dag er nefnilega aðeins ein tegund af Draum fáanleg – lakkrís-draumurinn. En svona hefur þetta ekki alltaf verið. Á upphafi voru annað hvort 3 eða 4 tegundir til af draumum. Mér er lífsins ómögulegt að muna hvaða bragðtegundir voru aðrar í boði. Það er þó eins og mig minni að til hafi verið appelsínudraumur og krókantdraumur. Er það misminni?
Góður draumur mar!
* * *
Vonandi hef ég ekki móðgað Dr. Gunna alvarlega með því að drigsla honum og félögum hans í Svarthvítum DRAUMI um að hafa ekki þekkt Cave á sínum tíma. Til að sleikja úr doktornum fýluna er rétt að taka það fram að Draumurinn var frábær hljómsveit og Grænir frostpinnar líklega eitt af fimm bestu íslensku rokklögunum.
* * *
Bláir draumar, platan sem Bubbi og Megas unnu saman er ein af uppáhaldsplötunum mínum. Hefur hún komið út á geisladisk? Hvenær ætla ég að gera alvöru úr því að brjótast inn til foreldra minna í skugga nætur og stela plötuspilaranum þeirra og svona hálfu plötusafninu?
* * *
Spurning: hver var DRAUMUR aldamótabarnsins í samnefndu lagi?
jamm