Dúmm-dí-dúmm…
Ég held að ég hafi aldrei upplifað svona „mánudagslegan“ þriðjudag. Allt gerist hægt, letilega og grútsyfjað.
Meðal verkefna sem ég hef ekki enn mannað mig upp í að klára er að leita að bæklingnum sem útskýrir hið hassaða símkerfi safnsins. Einhverra hluta vegna er síminn hættur að hringja inn á skrifborði hjá mér sem þýðir að ef hringt er hingað get ég annað hvort hlaupið eins og vitlaus maður herbergja á milli eða sleppt því að svara. Fyrir vikið er mjög náðugt hjá mér – engin símtöl.
* * *
Á einu af fáum símtölum dagsins sem ég þó svaraði, kom í ljós að Lína.net er að mæla massíva gagnaflutninga til og frá tölvum safnsins. Þar sem mér er ekki kunnugt um að samstarfsmenn mínir séu að hlusta á útvarpið gegnum netið, brenna geisladiska eða dávnlóda klámi eins og ödipusar – verð ég að gera ráð fyrir því að hér sé annað hvort vírus á ferðinni eða að Lína.net sé að eipa að ástæðulausu. Auðvitað ætti ég að vera að sinna þessu máli,… en það er mánudagur í mér svo ég geri ekki neitt.
* * *
Tók mig þó til og hringdi í afnotadeild RÚV, til að tilkynna að ég væri að flytja úr íbúðinni minni og ætlaði ekki að borga lengur af sjónvarpinu. Fékk þau svör að þetta gæti ég ekki gert símleiðis, heldur einungis með bréfi eða tölvupósti. (Hvers vegna í ósköpunum ekki???) – Fékk í kjölfarið þriðju gráðu yfirheyrslu um það hvernig stæði á þessum flutningum. Urg – helvítis afnotadeild! (Að sjálfsögðu er ég hlynntur RÚV, en ég er á móti afnotagjöldum enda eru þau nefskattur. Skattar eiga að vera tekjutengdir og helst þannig að blæði undan nöglunum á ríka liðinu…)
* * *
Annars er ég kátur yfir að hafa loksins tekist að leigja íbúðina. Leigjendurnir eru seleb, en þar sem ég er ábyrgur leigusali mun ég ekki blogga um þau hér.
* * *
Gott að frétta að Jóhanna sé búin að eiga.
* * *
Stefnir í fínt fótboltagláp í kvöld ásamt Gvendi Strandatrölli og Kjartani. Hver veit nema boltabullan óvænta sláist í hópinn? Get ég haldið með Svisslendingum í fótbolta? Tja, einu sinni verður allt fyrst.
* * *
Gæti þetta blogg verið mikið samhengisalausara? Kannski ætti ég að halda áfram uppteknum hætti frá því á föstudaginn þegar ég náði þematíska blogginu þar sem allar færslurnar tengdust orðinu „draumur“. Það var býsna kúl. Mér finnst að sem besta og frægasta bloggara landsins beri mér að leita stöðugt nýjunga í bloggi. Ég má ekki við því að staðna. Íslenska bloggsenan má ekki við því að ég staðni.
Úgg