Aldrei fór það svo að ég mætti á málþingið um bólusóttina. Það reyndist fullt starf að sjá um hlaupabólubarnið. Á dag fór hitinn hæst í 39,7 og stelpan lyfti vart haus af kodda – nema tíu mínúturnar sem læknirinn kom í húsvitjunina, þá lék hún við hvurn sinn fingur – augljóslega til að láta okkur líta út fyrir að vera taugahrúguforeldra sem trufli heilbrigðisstarfsmenn að minnsta tilefni.
# # # # # # # # # # # # #
Vegna hlaupabólunnar hef ég ekki farið mikið út fyrir hússins dyr síðustu þrjá sólarhringa.
Fór þó í útför Hallgerðar Gísladóttur á föstudaginn. Neskirkja var sneisafull. Ræðan hans Arnar Bárðar var mjög góð, raunar með betri minningarorðum sem ég man eftir.
Horfði líka á fótbolta á föstudagskvöldið ásamt Stebba Hagalín og sá hans menn kjöldregna 5:0. Og náði megninu af handboltaleik þar sem Framarar lágu fyrir Val.