Á dag er öskudagur og þess vegna mætti Ólína í grímubúningi í skólann. Hún er hvorki prinsessa né sjóræningi, heldur Holland. Hún er sem sagt lítil, græn og þakin af skjöldóttum mjólkurkúm. Við sendum hana sem sagt í náttfötum.
Ég skammast mín ekki vitund fyrir að hafa ekki farið í einhverja leikfangabúðina og keypt öskudagsgalla fyrir skrilljónir. Barnið skilur ekki ennþá út á hvað svona grímubúningatilstand gengur og er raunar ekkert alltof hrifin. Á næsta ári verður meiri viðbúnaður.
# # # # # # # # # # # # #
Paul Gascoigne er epískur snillingur. Einhvern veginn koma þessar fréttir ekki á óvart.
# # # # # # # # # # # # #
Drew Talbot, strákur sem við keyptum frá Sheffield Wednesday í janúar, bjargaði gærkvöldinu með því að skora sigurmarkið gegn sínum gömlu félögum. Luton er þá fjórum stigum frá fallsæti og við getum andað rólega amk. í nokkra daga.
Mark Talbots er hægt að sjá í afleitum gæðum á YouTube. Það kanni allir góðir menn.
Ég legg til að fall Moggabloggsins verði líka sett inn á YouTube!