Andrés Ingi hitti naglann á höfuðið. Hann var þó heppinn að ég ræki augun í svarið hans, því helv. hotmail-forritið ákvað að skilgreina skeytið hans sem ruslpóst einhverra hluta vegna.
Rétta svarið er: Öll tengjast nöfnin laginu The Safety Dance.
i) Dvergurinn sem dansar og syngur í hinu eftirminnilega myndbandi við The Safety Dance er sá sami og var inní leikbrúðu Jabba í þriðju Stjörnustríðsmyndinni.
ii) Kylie hefur ekki átt sérstöku gengi að fagna á hvíta tjaldinu, en flestum (þar með talið henni sjálfri) ber saman um að Bio Dome hafi verið slappasta myndin hennar. The Safety Dance kemur mjög við sögu í þeirri mynd.
iii) Þeir Stefan og Ivan voru forsprakkar hljómsveitarinnar Men Without Hats, sem gerði einmitt umrætt dægurlag.
iv) Pizzasendillinn Philip J. Fry, aðalsöguhetjan í Futurama hittir í einum þættinum ófyrirleitinn verðbréfasala frá níunda áratugnum, saman syngja þeir The Safety Dance af mikilli innlifun. Reyndar lætur Fry þess getið að dansinn sé reyndar alls ekki eins öruggur og ætla mætti – og talar þar greinilega af sárri reynslu.
v) Á eftirminnilegri senu í Scrubs spyr hjúkkan Carla unnusta sinn, skurðlækninn Turk, hvað hann myndi segja við því ef ófæddur sonur þeirra hneigðist til danslista en ekki fótbolta. Verður Turk þá að orði: „He can dance if wants to. He can leave his friends behind. Cause his friends don´t dance and if they don´t dance, well, they are no friends of mine…“ – Þetta er augljós vísun.
vi) Leiðindagaurinn Weird Al Yankowich gerði „fyndna“ útgáfu af The Safety Dance, þar sem hann gerði grín að The Brady Bunch þáttunum.
Þetta var vel af sér vikið hjá Andrési. Hann er karl í krapinu. Moggabloggið er snáðinn í snjónum.