There and back again

Rúmlega þriggja vikna frí­ að baki. Reykjaví­k í­ súld hefur sjaldan verið eins falleg og þegar komið var í­ bæinn um kvöldmatarleytið.

Það verður engin ferðasaga. Á mesta lagi brotakenndar hugleiðingar á næstu dögum. Annars skilst mér að bloggfrí­ séu í­ tí­sku núna. Kannski maður ætti bara að hætta til áramóta eða svo?

Leiðalýsingin er í­ sem allra fæstum orðum þessi: gist í­ tvær nætur að Bjargi hjá Ólí­nu tengdaömmu og Valda. Ekið á Tjörnesið og gist í­ eina nótt hjá Steina kúabónda. Keyrt fyrir Melrakkasléttuna með stuttri viðkomu í­ öllum smábæjum, stoppað á Borgarfirði eystri og gist í­ tvær nætur á ættarmóti. Haldið á Norðfjörð og stoppað í­ nokkra sólarhringa. Skotist niður á Breiðdal, gist hjá Nonna frænda og Guðrúnu á Þorgrí­msstöðum og sveitarstjórahjónin heimsótt á Breiðdalsví­k. Haldið aftur á Norðfjörð og stoppað fram yfir Verslunarmannahelgi. Gist eina nótt á Akureyri á heimleiðinni.

Tí­ðindi ferðarinnar: Ólí­na tók þroskakipp og talar sem aldrei fyrr. Barnið er lí­ka búið að læra að mestu að sofa í­ eigin rúmi og þar með fækkar óvæntum nýrnaspörkum til muna.

Lærdómur ferðarinnar: Þótt Hellisheiði eystri sé flottasti fjallvegur landsins, þá verður Vegagerðin að grafa göng þarna undir.

Sérviskulegasta lesning ferðarinnar: Saga Eldeyjar-Hjalta II bindi e. Gvend Hagalí­n.

# # # # # # # # # # # # #

Gamla þriðja deildin, sem nú heitir fyrsta deild, byrjar um helgina. Luton mætir Hartlepool. Mér sýnist mí­nir menn einkum hafa keypt gömul brýni fyrir tí­mabilið – framherja sem komnir eru framyfir hálffertugt og annað í­ þeim dúr. Vonandi veit þjálfarinn hvað hann er að gera – eitt er ví­st að stjórn félagsins gerir það ekki…

Hvernig standa annars þessi kærumál varðandi Leeds? Stendur þessi fimmtán stiga frádráttur sem lofað var?

# # # # # # # # # # # # #

Komst í­ tekjublað Mannlí­fs. Bloggaði reyndar sjálfur um tekjurnar mí­nar daginn sem ég sendi inn skattframtalið og komst þar að aðeins hærri niðurstöðu en Mannlí­fsblaðamaðurinn. Reikna með að það gildi um fleiri.

# # # # # # # # # # # # #

Annað kvöld mæta allir góðir menn á kertafleytingu á Tjörninni kl. 22:30. Skí­tt með truntulega veðurspá. Sí­ðustu 10 árin hefur alltaf snúist í­ gott veður á kertafleytingarkvöldum…

# # # # # # # # # # # # #

Á póstbunkanum sé ég mér til mikillar ánægju nýjasta eintakið af Technology and Culture. Þar eru m.a. greinar um sögulegan aðdraganda Ford T-módelsins og um ví­deótækjavæðingu heimilanna. Kvöldlesningunni bjargað!

# # # # # # # # # # # # #

Moggabloggið? Þarf eitthvað að hnýta í­ það meira – er það ekki löngu dautt í­ hugum flestra?