Efnahagsmál fyrir byrjendur + stjórnmálagetraun

Eins og allir vita er það á ábyrgð láglaunafólks að trggja að hagkerfið fokkist ekki upp. Þegar staða efnahagsmála er slæm og fyrirtækin í­ kröggum er augljóslega ekkert svigrúm til að hækka launin hjá verkafólkinu og þegar vel árar er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að standa á bremsunni til að hleypa ekki af stað verðbólgunni. Það er nefnilega lögmál að ef lægstu laun þokast upp á við er gjörsamlega útilokað að koma í­ veg fyrir að millistjórnendurnir og topparnir fylgi á eftir.

Næst þegar þið ætlið að hneykslast á einhverjum forstjóranum sem kaupir sér þyrlu eða fær Madonnu til að syngja í­ afmælinu sí­nu skulið þið minnast þess að bruðlið er ekki honum sjálfum að kenna heldur staffinu á gólfinu. Ef leikskólaleiðbeinendur hefðu ekki herjað út tvo launaflokka í­ sí­ðustu samningum hefðu bankastjórarnir örugglega afþakkað kaupréttarsamningana sí­na og fengið Sumargleðina í­ partýið.

Láglaunaliðið sýnir efnahagslí­finu einnig tilræði með því­ að vilja eignast húsnæði. Allir vita að þenslan í­ hagkerfinu er einkum tilkomin vegna fólksins sem er að kaupa sér 2-3 herbergja í­búðir á 20 milljónir. Með því­ að hækka vextina á lánunum til þessa hóps og þrengja aðeins greiðslumatið eru góðar lí­kur á að þetta fólk ákveði að kaupa sér ekki í­búð og búa hvergi.

Þannig að næst þegar þið heyrið sögur af einhverjum greifanum sem kaupir sér einbýlishús úti á Nesi fyrir 80 milljónir og byrjar á að rí­fa það nánast til grunna – hafið þá í­ huga að ef aðeins fleiri vesalingar sættu sig við að hafa barnaherbergið í­ stofunni hefði náunginn gert sér að góðu raðhúsí­búð í­ Fossvoginum.

Það er nú svo…

# # # # # # # # # # # # #

Pólití­sk getraun svona í­ vikulokin. Svör óskast í­ athugasemdakerfið:

Á þingmannatalinu á vef Alþingis er hvergi að finna nafn Gí­sla Hjálmarssonar. Engu að sí­ður var hann þjóðkunnur maður – í­ það minnsta í­ Reykjaví­k – á fyrri hluta sí­ðustu aldar. Hann var þá almennt titlaður þingmaður bæjarfélags úti á landi. Og nú er spurt: þingmaður hvaða bæjar var Gí­sli sagður vera?