Umskipti

Róttæklingaröltið tókst frábærlega. Þátttakendurnir voru á bilinu 50 og 60, sem er viðráðanlegt en þó algjört hámark í­ sögugöngu. Ég hef lent í­ því­ í­ vinnunni að taka 100 manna hópa í­ svona göngur og það er einfaldlega of mikið. Ætli hin fullkomna tala sé ekki 40?

Á lok göngunnar bættist nýr félagi á félagaskránna hjá okkur í­ SHA. Það væri ekki í­ frásögur færandi nema vegna þess að viðkomandi er fyrrum stjórnarmaður í­ Varðbergi.

Ég veit um fólk sem hefur byrjað í­ Sjálfstæðisflokknum en endað í­ VG eða Alþýðubandalaginu og öfugt – en eru það í­ raun ekki mesta pólití­ska umpólun sem hugsast getur að fara úr Varðbergi í­ SHA?

# # # # # # # # # # # # #

Tap gegn Swindon á útivelli í­ dag. Adam var ekki lengi í­ paradí­s.