Hin fánýta bikarkeppni Johnstone´s Paint Trophy byrjaði í kvöld. Luton sigraði Northampton á heimavelli 2:0. Samanlagður aldur markaskoraranna mun vera u.þ.b. 77 ár.
HörpuSjafnarbikarinn er ólánskeppni. Liðin eru skylduð til að stilla upp sex mönnum í byrjunarliði sem spiluðu í síðasta leik, til að koma í veg fyrir að sum félög sendi inn hrein varalið. Á rauninni er tómt bögg og vesen að komast áfram í keppninni, því þessir leikir þvælast bara fyrir þegar líður á tímabilið og eyða orku. Á hinn bóginn er líka niðurlægjandi að falla út í fyrstu umferð eins og Nottingham Forest. Þetta er því Catch-22.
Flestir stuðningsmenn hata HörpuSjafnarbikarinn – en þeir allra bjartsýnustu einblína á það eina sem er jákvætt við keppnina… úrslitaleikurinn er á Wembley.
Með öðrum orðum: við erum bara fjórum sigrum í viðbót frá því að spila á Wembley!