Jafntefli á útivelli gegn Oldham, 1:1. Ekki hægt að kvarta þar sem Oldham átti víst tuttugu skot að okkar marki en við fjögur á móti.
Skriðum upp um sæti á markatölu, erum þriðju neðstir (vegna stigafrádráttarins) á undan Port Vale og Bournemouth – öndum oní hálsmálið á Cheltenham. Hins vegar erum við sex stigum frá því að losna úr fallsæti, þar sem næsta lið er Millwall. Við mætum þeir einmitt í næsta leik, sem verður magnaður.
Liðið er að standa sig vel – einkum ef haft er í huga að það er ekki verið að greiða leikmönnum og starfsfólki klúbbsins laun.
Svo er bara að vinna Forest eftir viku og fá leik gegn Liverpool og peninga í kassann…
# # # # # # # # # # # # #
Held að ég hafi sjaldan séð bragðminni leik en AC Milan-Celtic í kvöld. Skotarnir töpuðu en fögnuðu samt, eru komnir í 16-liða úrslit sem er furðugott miðað við allt og allt.
# # # # # # # # # # # # #
Partý í sjónvarpssal annað kvöld. Held að ég megi blaðra því núna að ég sat annað árið í röð í dómnefndinni fyrir almenna flokkinn í Íslensku bókmenntaverðlaununum. Held að við megum vel við niðurstöðuna una.
En ég er búinn að lesa alltof, alltof mikið í þessum mánuði. Svona dómnefndarstörf eyðileggja gjörsamlega fyrir manni jólin sem lestrarhátíð.
# # # # # # # # # # # # #
Andinn í glasinu er Aberlour. Treysti því að það rífi úr mér hálsbólguna sem lagði mig hreinlega í bælið í dag.
# # # # # # # # # # # # #
Lífeyrissjóðirnir halda áfram að bregðast. Ég tek undir með Sigursteini Mássyni – ef þessar skerðingar þeirra á greiðslum til öryrkja fá að standa, þá eru rökin fyrir skylduaðild að lífeyrissjóðunum fallin. Ef lífeyrissjóðirnir vilja bara vera sparisjóður, þá er langeinfaldast að leggja þá niður og fela sparisjóðunum bara verkefnið.