Hlíðarendi

Jólaball foreldrafélags leikskólans Sólhlí­ðar fór fram í­ dag. Ég var skipaður umsjónarmaður þess að sækja og skila gervi-jólatrénu til að dansa umhverfis. Það fór auðvitað vel á því­ að fá heiðingja í­ það verkefni, enda jólatréssiðurinn vitaskuld rammheiðin forneskja, ekki sí­ður en jólasveinar, tröll og sá siður að halda hátí­ð þegar sólin fer aftur að rí­sa.

Við héldum skemmtunina í­ Valsheimilinu – og eiga Valsmenn heiður skilinn fyrir greiðvikni í­ tengslum við það. Salinn fengum við frí­tt og starfsfólk hússins var afar liðlegt.

Þetta var í­ fyrsta sinn sem ég skoðaði þessi nýju heimkynni Valsmanna. Húsið er stórglæsilegt. Auðvitað takmarkaði það nokkuð svigrúm arkitektanna að hússins er byggður á eldri byggingu – en Valsarar mega vera stoltir af húsinu.

Við Framarar unum þeim þessa að sjálfsögðu – enda hlýtur Valssvæðið að verða fyrirmyndin í­ samningum Fram við borgina, …nema okkar svæði verður auðvitað glæsilegra.

# # # # # # # # # # # # #

Jakob Bjarnar Grétarsson er grimmur í­ ritdómi um smásagnasafn Einars Kárasonar í­ Fbl. í­ morgun. Ég verð að svipast um eftir fleiri dómum, því­ ég hafi einmitt bundir vonir við þessa bók Einars, enda alltaf sökker fyrir hans verkum.

# # # # # # # # # # # # # # #

Það virðast óvenjumörg ensk neðrideildarlið vera í­ basli um þessar mundir.

Swindon virðist ramba á barmi hruns – þar sem hreinlega er verið að tala um að leggja niður klúbbinn. Sjá hér.

Hringjum í­ Glenn Hoddle og spyrjum hann hvað Swindon-stuðningsmenn hafi gert af sér í­ fyrra lí­fi til að eiga þetta skilið…