Liverpool heima

Luton stóð sig í­ stykkinu í­ kvöld. Við sundurspiluðum Nottingham Forest og erum komnir í­ þriðju umferð bikarkeppninnar. Þar bí­ður heimaleikur gegn Liverpool og að öllum lí­kindum bein útsending á Sýn.

Liðið er í­ greiðslustöðvun og leikmenn hafa enn ekki fengið laun greidd fyrir nóvember. Fyrir leikinn tilkynnti náunginn sem stýrir félaginu meðan leitað er nýrra kaupenda að leikmenn myndu geta fengið borgað – EF þeir ynnu leikinn og tryggðu sjónvarpspeninga í­ kassann. Það kallar maður árangurstengt launakerfi!

Úr því­ að þetta virkar svona vel er alveg spurning um að hætta að borga leikmönnunum alveg þangað til í­ vor…

Calvin Andrews er hetja! Skelli kannski tengli hingað ef ég finn markið hans í­ kvöld í­ þokkalegum gæðum á YouTube.

Uppfært: Hmmm… kannski ekki besta sjónarhornið?