Það var frábært að horfa upp á Luton gera jafntefli við Liverpool í enska bikarnum í dag. Við vorum fjandakornið betri í leiknum og hefðum hæglega getað stolið sigrinum.
Úrslitin eru einhver þau mikilvægustu í sögu liðsins. Eftir á að hyggja hefðum við ekki haft ráð á að vinna – tekjurnar af seinni leiknum verða ótrúlega drjúgar í peningavandræðunum.
Brill var frábær í markinu. Currie og Talbot fóru sömuleiðis á kostum. Reynar voru allir leikmennirnir góðir í dag.
Nú er gaman að vera til.