Miðað við þá staðalmynd sem margir hafa af Bandaríkjunum sem rammtrúuðu og íhaldssömu samfélagi er það óneitanlega nokkuð merkilegt hversu fjölbreytilegur frambjóðendahópurinn í forsetakosningunum er í raun. Á hópi sigurstranglegri kandidata er kona, blökkumaður með arabískt millinafn og mormóni.
Evrópubúar – sem telja sig þó miklu víðsýnni og umburðarlyndari en Bandaríkjamenn – virðast alltaf kjósa karlmenn sem eru á sama aldri og líta eins út.
Skrítið.
# # # # # # # # # # # # #
Gettu betur byrjaði víst í gær. Alveg fór það fram hjá mér. Getur verið að þetta hafi verið minna auglýst núna en undanfarin ár?
Mér skilst að víxlspurningarnar hafi verið felldar út og í staðinn bætt inn bjölluspurningum. Það auðveldar líf spurningahöfundarins óstjórnlega. Á mínum huga jafngildir þessi breyting 20% kjarabótum til dómara – því víxlspurningarnar eru það langsamlega flóknasta í samningu.
EN…
ístæðan fyrir að ég reyndi aldrei að stinga upp á þessari reglubreytingu á sínum tíma er sú staðreynd að útvarpið hefur í seinni tíð reynt að kappkosta að keppnislið þurfi ekki að fara langar leiðir á keppnisstað, heldur geti keppt í hljóðveri í sinni heimasveit. Fyrir vikið eru liðin að keppa hvert í sínum landshluta.
Það er meiriháttar ólán í bjölluspurningum.
Bjölluspurningar verða að vera með einni bjöllu – og aðeins einni. Ef bæði keppnislið hafa bjölluhnapp verður að tryggja að um leið og þrýst er á annan hnappinn lokist fyrir sambandið við hinn. Það er í praxís óframkvæmanlegt í útvarpinu. (Auðvitað er það ekki tæknilega óframkvæmanlegt og mætti hæglega útfæra með einföldum fídus á netinu – en ég þekki mína menn hjá RÚV og veit að það myndi aldrei lukkast…)
Mér virðist útvarpið ætla að taka sénsinn – sem gæti svo sem alveg gengið upp. Vissulega er mikill styrkleikamunur á liðum í flestum viðureignum í útvarpi – og hnífjöfnu viðureignirnar eru oftar en ekki milli tveggja liða af suðvesturhorninu… en þetta er ekki staða sem ég vildi vera í sem dómari.