Á síðasta hálftímanum hefur húsið í tvígang skolfið á þann hátt að maður ímyndar sér að píanóið hjá fólkinu á efri hæðinni hafi steypst fram fyrir sig. Þetta er verulega hvimleitt og óþægilegt. Bý ég þó í Norðurmýrinni en ekki í Holtunum þar sem verið er að sprengja og fleyga allan daginn. Óðinn bjargi fólkinu sem þar býr!
Getur einhver útskýrt fyrir mér lógíkina í því að:
– ef ég kem upp ljótum ruslabing á lóðinni minni og ergi þannig nágrannanana með sjónmengun, er hægt að klaga mig og skikka til að fjarlægja draslið.
– ef granninn í næsta húsi vill setja kvist á húsið sitt, þarf hann helst að labba á milli nágranna og biðja um leyfi.
– ef ég opna hárgreiðslustofu í kjallaranum fæ ég heilbrigðiseftirlitið á hælana.
En byggingafélag sem lætur húsin leika á reiðaskjálfi þarf ekki að spyrja kóng né prest í hverfinu. Verktakinn er að sjálfsögðu ekki bótaskyldur fyrir allt ónæðið – og hirðir væntanlega ekki einu sinni um að senda fólki jólakort eða blómvandarræfil fyrir umburðarlyndið.
íbyrgðin er svo sem að miklu leyti borgaryfirvalda. Það eru jú þau sem heimila þetta í skipulaginu. Væri ekki sanngjarnt að fólkið sem býr í húsunum sem verst verða úti fái t.d. fasteignagjöld niðurfelld – amk. fyrir framkvæmdamánuðina?