Þessa daganna er ég uppfullur af því að vera þingmannsmaki (þingmannsherra er einhvern veginn orð sem gengur ekki upp – og varla er ég þingmannsfrú…)
Það þýðir að ég hangi langdvölum á vef Alþingis, les og hlusta á ræður – pæli mig í gegnum þingskjöl og þess háttar. Á ljós kemur að Alþingisvefurinn er – þrátt fyrir óaðgengilegt útlit – einhver öflugasta fréttaveita landsins. Þar líða sjaldnast margar mínútur frá því að mál er tekið á dagskrá eða ræðu lýkur uns lesa má um það á vefnum.
Einn skemmtilegasti fídusinn er tímamæling á ræðum þingmanna. Þannig má sjá upp á sekúndu hvað hver þingmaður hefur talað lengi. Auðvitað gat ég ekki stillt mig um að slá því upp hvernig Steinunn stæði sig í samanburði við aðra varaþingmenn.
Nú verður að hafa í huga að varaþingmenn sitja mislengi inni. Varaþingmenn eiga ekki að fara inn nema fyrir tvær vikur að lágmarki – en stundum gerist það rétt fyrir þinghlé – eins og í tilfelli Tryggva Harðarsonar, sem talaði ekki nema í tvær mínútur fyrir áramót – en fékk svo sem ekki nema 3-4 daga á þingi fyrir jólafrí.
Að öllu jöfnu má þó reikna með því að varaþingmenn hafi náð tveimur vikum í þingsölum – að lágmarki.
Nú er vika liðin frá því að Steinunn settist á þing – eða öllu heldur átta dagar. Á þeim tíma hefur hún talað í 17 mínútur. Hvernig skyldi það koma út í samanburði við aðra?
Tja – Guðmundur Steingrímsson talaði í átta mínútur á hálfum mánuði síðasta haust. Róbert Marshall saxaði nærri Steinunni og talaði í 16 mínútur á sínum tveimur vikum.
Erla Ósk ísgeirsdóttir – formaður Heimdallar – talaði í ellefu mínútur á sínum tveimur vikum og Paul Nikolov í sjö mínútur.
Jón Björn Hákonarson – hinn ungi Norðfirðingurinn á þingi – hefur þó ennþá forskotið á Steinunni. Hann talaði í nítján mínútur á sínum tveimur vikum. Það er þó huggun harmi gegn að Steinunn hefur ennþá þrjá þingdaga til stefnu til að skjóta honum ref fyrir rass.
Jón Björn á etv. metið – að flytja jómfrúrræðu innan við 20 mínútum eftir að hann settist á þing… en Steinunn mælti fyrir lagafrumvarpi á fyrsta degi OG flutti andsvar…
Er ég stoltur af kerlingunni minni? Heldur betur!!!