Eftir á að hyggja voru það mistök að kaupa ekki dökkan og ljósan Kalda í ríkinu til að gera bragðsamanburð við þorrabjórinn frá litla brugghúsinu frá írskógssandi.
Mér finnst bragðið þó ekki benda til þess að maður hefði fundið ýkjamikinn mun. Þetta er fínn bjór – en ekki eins góður og sá ljósi.
Og hvers vegna valkyrjubeibið She-Ra er framan á flöskunni skil ég ekki.
# # # # # # # # # # # # #
Suður-Afríka situr á botni síns riðils í Afríkumótinu í fótbolta – og það eru ekki nema tvö og hálft ár í HM. Á sporum Suður-Afríkumanna væri ég farinn að hafa verulegar áhyggjur af gestgjafaskandal.
Japan 2002 og Sviss 1954 koma upp í hugann.
FIFA misreiknaði sig líklega þarna. Eftir á að hyggja hefðu norður-afrísku boðin sennilega verið betri.