Ekki komst ég á Bessastaði í dag þar sem íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent. Þangað var mér þó boðið – út á setuna í nefndinni sem valdi bækurnar í úrslitin.
Ljóðhús Þorsteins Þorsteinssonar hrepptu hnossið í almenna flokknum, sem mér finnst mjög maklegt. Oft hafa verðlaunabækurnar í þessum flokki verið það sem kalla má „gjafabækur“ – veglegar útgáfur með fínu prentverki, einkum hugsaðar til stórafmælisgjafa. Ljóðhús er hins vegar hefðbundin fræðibók – massívur texti, bönsj af tilvísunum – og ekkert léttmeti.
Á ljósi þessa vals verður því ályktun stjórnar Reykjavíkurakademíunnar þess efnis að hlutur fræðibóka væri rýr í bókmenntaverðlaunum ársins enn skringilegri, enda byggðist hún líklega á misskilningi.
En til hamingju Þorsteinn!