Gunni og Felix

Sí­ðdegis fór ég í­ Útvarpshúsið og keypti spólu með upptökum af Stundinni okkar í­ umsjón Gunna og Felix.

Ólí­na elskar Gunna og Felix. Spólan með sveitasælu – afmælisveislu Gunna – hefur rúllað ótal sinnum í­ gegnum tækið á Mánagötunni.

Börn geta horft út í­ hið óendanlega á sama efnið – svo allir foreldrar vita hversu mikils virði það er að barnaefnið sem spilað er í­ sí­bylju sé ekki gjörsamlega óþolandi og forheimskandi. Barnaefnið sem þeir Gunni og Felix bjuggu til er fantagott og hefur bjargað geðheilsu ófárra foreldra.

Á RÚV-versluninni stóð mér reyndar bara til boða að kaupa fyrri spóluna um ævintýri þeirra félaga, en á vefversluninni er bara seinni spólan boðin til kaups. Hún fannst hins vegar hvergi á lagernum.

Þá er bara spurningin hvort Gunni og Felix 2 sé fáanleg í­ Skí­funni eða á öðrum mögulegum sölustöðum…