Það virðist ætla að festast við fyrirhugaða Vatnsmýrarbyggð að tala um „102 Reykjavík“. Fólk er jafnvel farið að trúa því að þetta póstnúmer hafi á sínum tíma verið „tekið frá“ með þetta svæði í huga. Því trúi ég varla.
En stærri spurning er: hvers vegna í ósköpunum er ekki til póstnúmer 106? Og hvar gætum við komið því fyrir – á Seltjarnarnesi þegar búið verður að innlima það í Reykjavík?