Kaupæði og handlagni safnvörðurinn
Jæja, þá er maður rétt að komast yfir að mánaðarmótin séu skollin á – og þá á ég við hin raunverulegu mánaðarmót þegar nýtt greiðslutímabil gengur í garð – ekki hin þegar byrjað er að telja frá fyrsta. Að þessu tilefni rennur alltaf á mig kaupæði þann 18da sem varir í 4-5 daga. Þannig skellti ég mér í ríkið og hamstraði hvers kyns bús, þ.á.m. viskýflösku sem vonandi verður ekki drukkin á 1-2 kvöldum.
Á Lygasneplinum í morgun sá ég líka að stóri bókamarkaðurinn byrjar í dag. Að þessu sinni verður hann í Smáralind. Ég hef ekki keypt bækur lengi. (Ok, reyndar hef ég keypt fjórar bækur á síðustu tíu dögum en það var allt í gegnum netið – það telst varla með!) – Á þetta mál verður sem sagt gengið…
Á tengslum við allar þessar Visa-pælingar fór ég að renna í gegnum gömul yfirlitsblöð. Hvernig í andskotanum stendur á því að ef greitt er með korti í Quizno´s á Suðurlandsbrautinni, kemur það fram sem erlend úttekt? Ég er ekki alveg að skilja. Getur verið að Quizno´s sé flaggskip erlendra svikahrappa? Peningaþvætti af verstu tegund? Spyr sá sem ekki veit.
* * *
Annars er ég búinn að vera ótrúlega handlaginn í vinnunni undanfarna daga. Við Óli Guðmunds erum búnir að vera að mála kennslusalinn í leikskólalitum: rauðum, gulum, grænum og bláum. – Minnst samt af rauðum því kennslusálfræðin segir að börnin tjúnist upp við þann lit. Nóg er nú samt!
* * *
Að lokum – ráðgáta dagsins: hvers vegna í ósköpunum bragðast þríhyrndar samlokur betur en ferhyrndar?