Franska löggan slökkti víst Ólympíueldinn. Ætli það þurfi þá að fara aftur til Grikklands að kveikja í kyndlinum?
Þetta er líklega næstvandræðalegasta uppákoman í sögu þessarar hefðar með ÓL-eldinn. Pínlegra var það árið sem búið var að sleppa fjöldanum öllum af hvítum friðardúfum áður en kom að því að tendra eldinn í stóru keri á vellinum. (Var þetta í Barcelona 1992?)
Dúfurnar flugu upp í loftið, en hluti þeirra settist í skálina þar sem kveikja átti eldinn. Þegar hann var svo tendraður gaus upp mikið bál og dúfugreyin ýmist steiktust samstundis eða flugu brennandi út úr bálinu – milljónum sjónvarpsáhorfenda til skelfingar…