Vek athygli á þessum spurningum sem við í SHA höfum beint til íslenskra stjórnvalda. Bíð spenntur eftir svörum.
# # # # # # # # # # # # #
Um helgina varð endanlega ljóst að Luton er fallið. Við hefjum keppni í gömlu fjórðu deildinni næsta haust.
Allir stuðningsmennirnir standa þó eins og klettur á bak við Mick Harford. Stjórnin hefur líka sagt honum að hann megi kaupa leikmenn í sumar – jafnvel fyrir svimandi upphæðir eins og 150 þús. pund.
Það þætti tittilingaskítur hjá sumum klúbbum. En hver vill líka halda með þeim?