Á morgun var ég kallaður í viðtal hjá Capacent vegna umsóknar minnar um forstjórastöðu Varnarmálastofnunar. Mér var sagt í upphafi að þetta tæki tæpan klukkutíma, en ég losnaði þó ekki út fyrr en eftir eina klukkustund og tuttugu mínútur, enda um margt að ræða og frá mörgu að segja.
Ráðuneytið vill ákveða þetta sem allra fyrst og því skilst mér að það verði stutt í að ég fái svar af eða á.