Íshokký

Var að ljúka við að horfa á úrslitaleikinn á HM í­ í­shokký. Sjónvarpið fær stóran plús í­ kladdann fyrir að sýna frá þessu móti.

Ég hef fylgst með í­shokkýi með öðru auganu frá vetrarólympí­uleikunum 1988, þegar finnska liðið sló í­ gegn.  Á kjölfarið fór ég að leggja mig eftir því­ að fylgjast með stórmótum – einkum með Finnum en einnig með Tékkum.

Kjartan írnason, höfuðsnillingur og félagi minn í­ sagnfræðinni á sí­num tí­ma, var dyggur stuðningsmaður tékkneska liðsins og saman horfðum við á nokkur stórmót á Eurosport.

Ég skal fyrstur manna viðurkenna að ég skil illa í­shokký. Það er ekkert grí­n að fylgjast með sporti sem er leikið á svona hröðu tempói. Toppmenn í­ í­sknattleik eru afburðaí­þróttamenn, grí­ðarlega lí­kamlega sterkir og með mikla snerpu.

Sjónvarpið hefur lí­ka reynt að sýna frá í­slensku í­shokkýi sí­ðustu misserin. Það er þunnur þrettándi.

Mig grunar að til að í­þróttin nái að vaxa hér heima, þá verði stóru, rótgrónu í­þróttafélögin að taka greinina upp á sí­na arma. Þegar Fram, KR og Valur verða farin að berjast við Skautafélag Reykjaví­kur, Björninn og Skautafélag Akureyrar um Íslandsmeistaratitilinn, þá fyrst held ég að í­shokkýið muni ná máli sem í­þróttagrein hér heima.