Kom heim af enn einum tapleiknum gegn KR í Frostaskjólinu og frétti þá að frúin hafi tekið sig til og klippt í öll snuð barnsins nema eitt. Á kjölfarið voru þau úrskurðuð ónýt og fóru í tunnuna.
Á næstu dögum fer síðasta snuðið sömu leið. Þá tekur við skeið kalda kalkúnsins.
Ekki hefði ég nú verið svona kaldrifjaður – en einhver verður jú að vera hörkutólið.
# # # # # # # # # # # # #
Jarðvegsvinnan á Mánagötunni er á góðu skriði. Það er komin hyldýpisgjá í miðjum garði, þar sem garðpallurinn á að rísa.