Á fjórtándu öld var rokkið ekki til…
…en í dag er rokkið staðreynd!
Skreið upp í sófa eftir að dagskránni í Elliðaárdalnum og kokteilnum á eftir var lokið. Horfði á upptöku af Ham-mynd gærkvöldsins. Hún var fín.
Skemmtilegast var þó að sjá klippurnar úr „Sögu rokksins“ – Ham-myndinni frá 1991. Það var mikil opinberun að sjá þá mynd á sínum tíma. HAM var snilldarhljómsveit og tónleikar þeirra í MH og í Kösukjallara í MR voru magnaðir. Einu sinni var Barði bekkjarbróðir (Bang Gang-liði) búinn að fá HAM og Geirmund Valtýsson til að fallast á að troða upp saman. Illu heilli fékkst það ekki samþykkt af forsvarsmönnum Skólafélagsins í MR. Það er synd, því slíkir tónleikar hefðu komist í sögubækurnar.
En mikið óskaplega var HAM nú samt ljót hljómsveit…