Guðjón Þórðarson er enn og aftur orðaður við Hearts – mína menn í skoska boltanum.
Hearts er fínn klúbbur, en eigandinn er snar og rekur þjálfara í gríð og erg. Helst virðist hann sækja í að ráða menn sem ekki geta vallið úr öðrum störfum, að því er virðist í þeirri von að þeir láti bjóða sér nánast hvað sem er af dyntum hans og frekju.
Það yrði athyglisvert að sjá Guðjón starfa í Edinborg. Hann gæti ráðið Pál frænda minn sem sérstakan ráðgjafa – hann er flestum mönnum fróðari um Hearts og skoska knattspyrnu.