Framkvæmdum við garðinn á Mánagötu er lokið að heita má. Komin er þessi fína stétt og túnþökurnar eru að skjóta rótum.
Eftir að trén sem stóðu á lóðinni miðri voru fjarlægð kom í ljós að á besta stað í garðinum er hálfgerður suðupottur í síðdegissólinni. Við eigum eftir að sitja þarna löngum stundum.
Næsta framkvæmd bíður haustsins. Þá er ætlunin að skipta rusl-/gestaherberginu upp í tvennt – barnaherbergi og bókageymslu. Okkur vantar bara góðan smið í djobbið.
Það er engin kreppa á Mánagötu – kraftvélar efnahagslífsins eru á fullri ferð!