Kínverjar hafa víst sent frá sér lista yfir óæskilega gesti á Ólympíuleikunum. Vef-mogginn hnýtur sérstaklega um að á þeim lista séu nefndir bæði geðfatlaðir og fjárhagslega ósjálfstæðir einstaklingar.
Mér vitanlega hafa íslensk stjórnvöld ekki gert kröfu um geðheilbrigðisvottorð þess fólks sem hingað ferðast – en hitt þekkjum við, að fólki sem hingað kemur til tímabundinnar dvalar er gert skylt að sýna fram á fáránlega háar peningainnistæður. „Fjárhagslega ósjálfstætt fólk“ er ekki síður illa séð á Íslandi en í Kína.
Það er sjálfsagt að skamma stjórnvöld í Bejing fyrir dónaskapinn – en lítum okkur nær líka!