Dr. Jeckyll og herra Hyde

Þegar ég er heima hjá mér, fara öll óhrein glös og bollar nokkurn veginn beint í­ vaskinn og bí­ða uppþvottar.

Á vinnunni vil ég hins vegar helst drekka úr kaffikrús sem hefur ekki verið þvegin í­ margar vikur og er komin með fasta skán á botninn.

Gotneskar skáldsögur hafa verið skrifaðar að minna tilefni.