Djöfull tók ég´ann…

Össur Skarphéðinsson er skrí­tin skrúfa. Bloggsí­ðan hans hefur alloft komist í­ fréttirnar – einkum í­ tengslum við einhverjar blammeringar og sleggjudóma. Þetta töldu einhverjir merki um að ráðherrann væri stí­lsnillingur. Sjálfur sá ég aldrei stí­lsnilldina í­ frekar tilgerðalegri notkun á orðatiltækjum og frösum. En gott og vel, það má ekki taka það af Össuri að bloggið hans hefur meira aðdráttarafl en gerist og gengur með sí­ður í­slenskra stjórnmálamanna – sem sumar hverjar virðast ennþá vera búnar til árið 1997 og byrja á forsí­ðuávarpi sem hefst á: „Alnetið er miðill framtí­ðarinnar… blabla…“ Þess vegna les ég blogg Össurar Skarphéðinssonar og mun halda því­ áfram. Mikið óskaplega vildi ég samt að iðnaðarráðherra vendi sig af einum ljótum ósið – sjálfshólinu. Tökum pistil kvöldsins sem dæmi.  Á honum skammast Össur út í­ Steingrí­m Joð, sem hann telur hafa farið illa út úr umræðum dagsins á þinginu. Gott og vel – það kann vel að vera að SJS hafi verið slappur og lent í­ vandræðum (ekki horfði ég á þetta). Það getur lí­ka vel verið að Össur hafi verið í­ banastuði og pundað út djókunum á kostnað stjórnarandstöðunnar. En mikið finnst mér það óþægilegt að lesa pistla þar sem menn hrósa sjálfum sér með þeim hætti sem þarna er gert. „Djöfull tók ég´ann…“ gæti pistill ráðherra eins hafa heitið – því­ það er augljóst að Össuri finnst hann hafa farið á kostum.Á fljótu bragði man ég ekki eftir öðrum í­slenskum stjórnmálamönnum sem tileinkað hafa sér þennan stí­l. Og þó – í­ sjálfsævisögu Steingrí­ms Steinþórssonar  má finna allmarga kafla sem eru í­ þessum dúr. Þar sem andstæðingunum er lýst sem viðskotaillum og hlægilegum, en frægum sigrum Steingrí­ms í­ kappræðunum lýst nákvæmlega og oftar en ekki klykkt út með klausum eitthvað á þessa leið: …og þótti Húnvetningum almennt að ég hafi farið með sigur af hólmi og (nafn á pólití­skum andstæðingi) hefði minnkað að áliti. Er Össur kannski Steingrí­mur Steinþórsson sinnar kynslóðar? Þar væri ekki leiðum að lí­kjast.Â