Fyrir nokkrum dögum spáði ég því að stríð kynni að brjótast út í Nagorno-Karabakh.
Núna er Dick Cheney staddur í Azerbaijan með það yfirlýsta markmið að styrkja tengslin við stjórnina þar, sem er í miklum metum hjá ráðamönnum í Bandaríkjunum og Nató.
Á gær hlustaði ég svo á viðtal við stjórnmálamann/fréttaskýrenda frá Azerbaijan á BBC World Service, útskýra hvers vegna Nató-ríki ættu að styðja Azera í að ná völdum í Nagorno-Karabakh. Héraðið hefur verið í raun sjálfstætt í tæp tuttugu ár – en engu að síður talaði maðurinn eins og að þessi staða væri afleiðing af útþenslustefnu Rússa og mátti helst skilja á honum að Pútín væri nýlega farinn að kynda undir ófriðarbálinu þarna.
Ég er svo sem ekkert hissa þótt einhverjir vestur-evrópskir stjórnmálamenn noti Georgíudeiluna til að fella auðveldar keilur í einhverju áróðursstríði við Rússa, en ábyrgð manna er mikil ef þeim tekst að koma af stað nýju stríði um Nagorno-Karabakh.