Á dag verður kosið milli þriggja ríkja um tvö laus sæti Evrópu í öryggisráði SÞ.
Eitt þessara framboða bera ef eins og gull af eir. Það er austurríska framboðið.
Austurríkismenn hafa um árabil verið öflugir forvígismenn í baráttunni gegn kjarnorkuvopnum á vettvangi SÞ. Þeir hafa flutt fjölda tillagna og vakið verðskuldaða athygli sem talsmenn friðar og afvopnunar á þessum vettvangi. Því miður hefur það verið upp og ofan hvort Nató-þjóðirnar Ísland og Tyrkland hafa greitt atkvæði með eða á móti slíkum tillögum. Hjáseta er þó algengasta niðurstaðan.
Á afvopnunarmálum kýs Ísland nefnilega undantekningarlítið eins og línan frá Nató segir til um.
Þess vegna vona ég innilega að Austurríki slái okkur og Tyrkjum við á eftir.