Hreiðurgerðin heldur áfram. Öll helgin fór í að sparsla, grunna, pússa og mála. Þetta er endalaust helvíti…
Sýnist þó að þetta eigi eftir að verða bara helvíti fínt þegar yfir lýkur.
# # # # # # # # # # # # #
Spændi mig í gegnum Hjarta Voltaires, bók sem kom út hjá Kiljuklúbbnum nýverið. Þetta reynist bara stórskemmtileg lesning. Bókin er er öll sett upp eins og afrit af tölvupóstssamskiptum. Hef rekist á nokkrar slíkar bækur og alltaf líkað vel.
Bíð samt enn eftir að einhver rithöfundurinn hafi sig í að gefa út bók þar sem frásögnin væri borin upp af sms-skeytum. Er Mikael Torfason ekki á lausu?