Þeir voru óheppnir ungliðarnir í Samfylkingunni í dag.
Ráðherrar Samfylkingarinnar lýsa því yfir að Davíð Oddsson Seðlabankastjóri komi þeim ekki við og starfi ekki á ábyrgð þeirra. (Reyndar mætti spyrja sig hvort það væri ekki eðlilegra fyrir kratanna að taka málið upp í bankaráðinu og freista þess að fá þar samþykkt vantraust á bankastjórann frekar en að pukrast með bókanir á lokuðum fundum.)
Sama dag senda ungliðarnir svo frá sér ályktun um kosti evrunnar. Þar er sérstaklega til þess tekið að í evrusamstarfi yrði Ísland svo sannarlega ekki áhrifalaust, því við ættum eitt atkvæði í bankanum og rödd í stjórn Evrópska seðlabankans.
En hver færi með atkvæðið og hver yrði rödd Íslands? Jú, það væri Davíð Oddsson – maðurinn sem Samfylkingin segir að komi sér ekki við!
Er hægt að vera mikið óheppnari með tímasetningu á ályktun?
Annars erum við í SHA alvarlega að spá í að dusta rykið af merkjavélinni og fara aftur að framleiða gamalt og klassískt barmmerki: „Davíð í herinn og herinn burt!“ – Eitthvað segir mér að við gætum selt vel af því merki núna.