Málaferlin

Fyrir fáeinum dögum töluðu gömlu Kaupþingseigendurnir drýgindalega um málaferlin sem þeir ætluðu að stofna til í­ Bretlandi og fá SKRILLJÓNIR í­ bætur frá breskum stjórnvöldum og eyðileggja pólití­skan feril Gordons Brown fyrir að hafa sett bankann á hausinn með glannaskap sí­num.

Á ljósi þess að stjórnendur Kaupþings virðast hafa verið á kafi í­ því­ mörgum vikum fyrr að bjarga eigin skinni ef bankinn færi á hausinn – má þá ekki slá því­ föstu að þeir yrðu hlegnir út úr hverjum einasta dómssal?