Jarvis Rossi skoraði á 90. mínútu í góðum útisigri gegn Walsall í málningarbikarnum í kvöld. Walsall leikur í gömlu þriðju deildinni og tefldi fram sínu sterkasta liði. Þetta eru því fjári góð úrslit.
Auðvitað er málningarbikarinn hálfgerð aulakeppni. Þarna keppa liðin úr gömlu þriðju og fjórðu deildinni. Enginn hefur í raun áhuga á úrslitaleiknum aðrir en stuðningsmenn liðanna sem keppa (og Mogginn þegar Guðjón Þórðarson vann bikarinn með Stók) og aðeins hörðustu tölfræðinirðir muna hverjir unnu fyrir 2-3 árum…
…en…
…úrslitaleikurinn er á Wembley, sem kveikir í sumum stuðningsmönnum og stöku leikur ratar í sjónvarp.
Það er reyndar ástæðan fyrir að ég fagna svo mjög sigrinum í kvöld. Nú erum við sem sagt komnir í átta liða úrslitin og fyrir liggur að einn af leikjunum fjórum verður í beinni útsendingu á Sky. Það eru því 25% líkur á sjónvarpsleik – mögulega þeim eina sem ég get vænst á þessu keppnistímabili.