Jess! Kreppunni er reddað. Samkvæmt Stöð 2 erum við búin að finna olíu að andvirði skrilljón-smilljón-brilljarða króna. Þá getum við hætt að hafa áhyggjur af krísunni og snúið okkur að næstu skrefum:
i) Segja upp Kyoto-sáttmálanum (það eru hvort sem er engar vísindalegar sannanir fyrir gróðurhúsaáhrifum)
ii) Kaupa stærri flatskjái
iii) Stofna olíusjóð… æh, nei annars – það ótrúlega eitthvað norskt og súrt
iv) Senda Færeyingum einhvern glaðning… æh, nei annars – hvenær hafa þeir gert neitt fyrir okkur?
v) Kaupa Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og beita honum til að setja Breta á hausinn
vi) Kaupa Evrópusambandið og reka Hollendina úr því
vii) Selja Finni Ingólfssyni olíulindirnar fyrir slikk (hann á hvort sem er eftir að stela þeim með einhverjum hætti)
– Held að þetta sé bara nokkuð tæmandi listi.