Jæja, Bjarni Harðarson sagði af sér. Á sínum tíma efndi ég til getraunar þar sem ég bað fólk um að giska hvaða sitjandi þingmaður myndi fyrstur láta af störfum. Enginn giskaði á Bjarna.
Ekki varð þingferillinn langur, en engu að síður reyndist hann afdrifaríkur.
Gleymum því ekki að Bjarni Harðarson felldi ríkisstjórnina. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur héldu meirihluta í síðustu kosningum, en Bjarni lýsti því yfir að hann styddi ekki slíka stjórn og þar með var hún fyrir bí.
Margir hafa setið lengi á þingi en afrekað minna.
En ætli það megi þá ekki jafnframt segja eftir fréttir dagsins að líkurnar á samstjórn íhalds og framsóknar hafi aukist ef upp úr núverandi meirihluta slitnar?