Snillingar í Eyjum
Hlustaði með öðru eyranu á fréttir úr bæjarmálapólitíkinni í Eyjum í morgun og komst að þeirri niðurstðu að ég hefði verið eitthvað utan við mig og heyrt vitlaust. Skoðaði svo Moggann á netinu og sá að þetta var enginn misskilningur – bæjarfulltrúi Framsóknar (sem skipti um samstarfsflokk í óþökk flokkssystkina sinna) hélt í alvörunni að hann gæti bara sent út fréttatilkynningu um að maðurinn í 13. sætinu ætti hér eftir að vera varamaður hans – en ekki konan sem var í sæti nr. 2. Þetta er frábærlega fyndið – einkum í ljósi þess að Lúðvík Bergvinsson, félagi hans í nýja meirihlutanum á að heita lögfræðingur. Hvernig í ósköpunum datt þeim í hug að þetta væri hægt?
Annars myndi þessi taktík bjóða upp á ýmsa möguleika. Það væri t.d. flott ef ílfheiður Ingadóttir myndi senda út fréttatilkynningu daginn eftir kosningar að Sesar A úr 19. sætinu sé varamaður hennar, Jóhanna Magnúsdóttir myndi tilnefna Dag Kára kvikmyndagerðarmann sem sinn varamann og Steingrímur Joð myndi skipa Hörð Flóka handboltamarkmann varamann fyrir þau Þuríði… – þá gæti þingflokkurinn komið ýmsum í opna skjöldu.
En mun Ingi Sigurðsson missa bæjarstjórastólinn í Eyjum? Það væri nú svekkjandi þegar hann er nýbúinn að fara í forsíðuviðtal í Magasín. Það væri nánast eins mikil óheppni og þegar Axel Axelsson (úr Axel og félögum) fór í viðtal við blað sem dreift var ókeypis í öll hús og boðaði miklar breytingar á þættinum á næstunni – þegar blaðið kom úr prentun var „Axel og félagar“ orðið „Björn og félagar“…