Á dag fékk ég tilboð. Það var reyndar ekkert ósiðlegt við það – fyrirsögnin er bara flottari svona.
Á stuttu máli er um það að ræða að einhversstaðar í fjöllunum í Austurríki er gömul 60 kw rafstöð með gufuvél sem knúin var áfram með því að brenna timbri. Stöðin var tekin úr notkun árið 1977 í framhaldi af gangsetningu nýrrar vatnsaflsvirkjunar.
Einhverra hluta vegna komust Austurríkismennirnir að þeirri niðurstöðu að stöðin eigi best heima á íslensku safni. Og þá sérstaklega ef hægt væri að láta hana ganga fyrir íslenskri gufuorku.
Þessi hugmynd er augljóslega ekki mjög raunhæf – en þeim mun frumlegri…