Þetta eru góðar fréttir. VG í NA-kjördæmi er þegar búið að negla niður forval, sem klárað verður strax í þessum mánuði. Ætli það verði ekki fyrsta prófkjör ársins?
Fyrir síðustu kosningar var NA-kjördæmi með mikinn vandræðagang varðandi val á lista. Farið var í einhverja „póst-skoðanakönnun“ sem menn voru of heilagir til að kalla prófkjör, en var að sjálfsögðu meðhöndluð sem slíkt þegar á hólminn var komið.
Ég reikna fastlega með því að önnur kjördæmi muni horfa til þessa fordæmis þegar kemur að því að velja á lista – og að þetta verði gert hratt og örugglega. Það er líka áhugavert að óskað sé eftir frambjóðendum í átta efstu sætin. Yfirleitt fara prófkjörin ekki svo neðarlega á listann.
Það er margt gott fólk í NA-kjördæmi sem ég ætla að vona að gefi kost á sér í forvalinu. Ég myndi t.d. vilja sjá Bjarkeyju Gunnarsdóttur frá Ólafsfirði framarlega í flokki og býst við að margir séu sammála mér í því.