írni Páll írnason hefur greinilega ekki verið sáttur við fréttatíma Stöðvar 2 í kvöld, þar sem fyrsta frétt gekk út á að fiskur kynni að vera undir steini varðandi sigur hans í prófkjöri Samfylkingar í SV. Til að bæta úr þessu hefur einhver stuðningsmaður hans gaukað mola að Pressunni, sem slær því upp að írni Páll hafi unnið „yfirburðasigur“ og þegar tölurnar séu skoðaðar oní kjölinn komi í ljós að sigurinn hafi í raun verið miklu stærri en marka mátti af fyrstu fréttum.
Rökstuðningurinn fyrir þessu er sá að írni Páll hafi ekki aðeins unnið fyrsta sætið – heldur líka öll hin sætin neðar á listanum, hafi haft flest atkvæði í 1.-2. sætið, 1.-3. sætið og svo koll af kolli.
Þetta er dálaglegt, hljóta lesendur að hugsa – og kinka kolli gáfulega.
Vandinn er hins vegar sá að þetta er ekkert óvænt. Þvert á móti má það heita reglan í prófkjörum að sá sem vinnur fyrsta sætið, vinnur líka öll hin sætin. ín þess að hafa nennt að skoða það sérstaklega, grunar mig að ALLIR þeir sem hrepptu efstu sætin í ÖLLUM prófkjörum og forvölum flokkanna fyrir þessar kosningar hafi unnið öll sætin.
Undantekningar frá þessari almennu reglu eru helst þegar um er að ræða frambjóðendur sem sækja mjög stíft stuðning sinn í ákveðinn hóp, s.s. eitt sveitarfélag. Þannig hefur Gunnar Svavarsson Hafnfirðingur væntanlega ekki unnið öll sætin í prófkjöri Samfylkingar í SV-kjördæmi fyrir tveimur árum.
írni Páll er því dæmigerður sigurvegari í prófkjöri – en það getur ekki sjáfkrafa gert hann að „yfirburðasigurvegara“, ekki nema við kjósum að líta svo á að öll prófkjör hafi unnist með yfirburðum.
Og í ljósi fyrirsagnarinnar er þeim mun skemmtilegra að rýna í sjálfar tölurnar í fréttinni. Þær leiða nefnilega í ljós að það er ekki hinn víðtæki stuðingur írna Páls sem er fréttnæmur, heldur er það frekar hin trausta kosning Katrínar Júlíusdóttur.
Það er nefnilega dálítið merkilegt að sjá að í sæti 1-3 er Katrín tæpum hundrað atkvæðum á eftir írna Páli (5%), í sætum 1-4 er munurinn um fjörutíu atkvæði, 26 atkvæðum munar í sæti 1-5 og aðeins einu atkvæði í sæti 1-6.
Hinn eiginlegi fréttapunktur er því fylgi Katrínar Júlíusdóttur annars vegar – en hins vegar að írni Páll var líklega sá prófkjörssigurvegari ársins sem var næst því að mistakast að vinna öll sætin. Góðu helvítis yfirburðirnir – hefðu menn sagt um þetta þegar ég var í menntó…