A: Hvað gerðirðu við 30 milljónirnar sem frúin í Hamborg gaf þér í gær?
B: Ég borgaði skuldir.
A: Ha, varstu svona blankur?
B: J…, öhh, ég meina – skuldirnar voru talsverðar…
A: Já, það er ekki gott. Vextirnir svona háir og allt það.
B: Einmitt.
A: En þessar skuldir, hvernig komu þær til?
B: Öh, bara svona – þú veist. Það þurfti til dæmis að mála flokkskontórinn.
A: Aha – og hvaða lit valdirðu á hann?
B: Ha-hann er ljós á litinn.
A: Æ, greyið. Varstu sem sagt nýbúinn að mála kofann þegar helvítis anarkistarnir komu og slettu rauðri málningu yfir´ann?
B: Urr, ömurlegt helvíti.
A: Já, þú segir það… og hvernig er samviskan núna?
B: Hún er svört… Rats!