Krafa samtímans er hreinskilni í stjórnmálum. Fólk er orðið leitt á heyra stjórnmálamenn lofa meiru en þeir geta staðið við.
Ég held samt að Samfylkingin sé nú búin að setja ný viðmið þegar kemur að hreinskilni…
Á stefnulýsingu flokksins – sem ber reyndar yfirskriftina Manifesto (neinei – það er ekkert hallærislegt…) segir í kaflanum um utanríkismál:
Samfylkingin leggur áherslu á að Íslendingar taki virkan þátt í því fjölþjóða- og alþjóðasamstarfi sem á hverjum tíma er líklegast til þess að stuðla að friði og öryggi jafnt í nágrenni okkar og í heiminum öllum. Forsenda öryggis og friðar er lýðræði, jafn réttur allra þjóða og þjóðarbrota, vinsamleg samskipti og gagnkvæm virðing, frjáls viðskipti og frjáls för fólks. Samfylkingin vill þátttöku Íslendinga í samstarfi þjóða sem stuðlað getur að framþróun þessara stefnumála, hvort heldur er í okkar heimshluta eða á alþjóðlegum vettvangi. Samfylkingin bendir á að ýmis brýn hagsmunamál Íslendinga, til dæmis í umhverfismálum, verða ekki leyst nema í nánu alþjóðasamstarfi.Bæta við innihaldi…
…já…
Ég er reyndar alveg sammála því að utanríkisstefna Samfylkingarinnar mætti svo sannarlega við innihaldi…
Þetta er aðdáunarverð hreinskilni!
(Núna er klukkan 14:30… hvað eigum við að gefa þeim langan tíma til að kippa þessu í liðinn? 20 mínútur?)
(Uppfært klukkan 15:45 – jæja, þá er setningin farin út!)