Horfði á seinnipartinn af leik Fram og Hauka á vefsjónvarpi HSÁ í kvöld. Synd og skömm að þetta hafi ekki verið í beinni útsendingu í Sjónvarpinu.
Framstelpurnar voru gríðarlega öflugar og áttu svo sannarlega skilið að slá deildarmeistarana út í kvöld. Það er frábært að liðið sé komið í úrslitaeinvígi um Íslandsbikarinn. Vonandi verður það á móti erkióvininum – Val.
Ég hef raunar aukaástæðu til að fagna því að keppnistímabilið framlengist með þessum hætti.
Þann 1. maí mun bókin mín um sögu Fram í 100 ár koma út. Það er afmælisdagur félagsins og þar með lýkur formlega aldarafmælisári félagsins.
Auðvitað vil ég að bókin seljist vel – standi undir sér og skili jafnvel smáhagnaði til félagsins. Á því skyni er einmitt sérstaklega gott að handboltavertíðinni verði ekki lokið á útgáfudaginn. Á tengslum við úrslitakeppnina verða mannamót og samkomur þar sem bókinni verður skóflað út. Þriðjungur verksins fjallar um handbolta, svo unnendur þeirrar íþróttar ættu að finna sitthvað við sitt hæfi.
Meira um þessa útgáfu síðar…